Frí sending með Dropp á pöntunum yfir 12.500 kr.

Ástaraldin næring - síður feldur
Ástaraldin næring - síður feldur

Ástaraldin næring - síður feldur

Regular price
3.230 kr
Regular price
Verð
3.230 kr
Einingarverð
per 
Availability
Uppselt
Virðisauki innifalin. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Vítamínbætt næring með léttan ilm af ástaraldin. Feldurinn verður silkimjúkur eftir notkun.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR: Setjið nóg af vörunni í nýþvegin feldinn á meðan hann er enn rakur. Dreifið vel í feldinn og látið vinna í 5 - 10 mín. Skolið vandlega með volgu vatni.

ÁBENDING: Ástaraldin næringin er þróuð sérstaklega fyrir hunda sem fá síðan feld. Varan inniheldur siliprótein og panthenol, B-vítamín sem veitir raka og meðhöndlar húð og feld. Einnig er hægt að nota þessa vöru fyrir tegundir með millisíðan feld eins og Scottish Terríer eða Amerískan Cocker Spaniel.

Til að ná sem bestum árangri ætti að blanda vörunni í heitt vatn (það virkja próteinin í vörunni). Blanda vel saman en passa að blandan sé ekki of heit þegar hún er borin í feldinn. Þegar varan er blönduð kröftuglega saman við vatn, t.d. með písk þá þykknar hún og nær þannig að vinna vel í feldinum. Hlutfall næringar og vatns er 1:3, en það getur verið breytilegt eftir feldgerð hvaða blanda hentar best.

Hægt er að nota vörur úr Fruit of the Groomer vörulínunni sem djúpnærandi meðferð t.d. í þriðja hvern þvott auk hefðbundinnar feldhirðu. Þá er tilvalið að nota þessar vörur einar sér eða í bland við aðrar í close-open-close meðferðina.