Feldhirða á sumrin

Sumarið er tími útivistar, sólskins og samveru með gæludýrunum okkar. Við förum í sund, röltum um í náttúrunni og njótum þess að vera úti — og þó það sé okkur öllum hollt, hefur það ýmis áhrif á húð og feld dýranna okkar. Hér eru nokkur gagnleg ráð til að viðhalda heilbrigðum og glansandi feldi og styðja við náttúrulegar varnir húðarinnar yfir sumartímann.

Áhrif sólarinnar 

Sólin hefur bæði jákvæð og krefjandi áhrif – hún gefur hlýju og birtu, en við verðum líka að huga að áhrifum UV-geisla og hita. Feldurinn er náttúrulegt varnarlag fyrir húðina og því ætti hann ekki að vera klipptur of stuttur. Húðin framleiðir hár til verndar, og feldurinn hjálpar við að viðhalda eðlilegum líkamshita og verndar gegn bæði sól og öðrum utanaðkomandi áhrifum. 

Rétt eins og fólk í heitum löndum klæðist síðum fatnaði sem verndar gegn sólinni en leyfir loftflæði, þá gegnir feldur hundsins svipuðu hlutverki. Að hlúa að heilbrigði feldsins hjálpar því einnig við að stýra loftflæði og varma. 

Pigment (litarefni) í aðalhárum hundsins gegna einnig hlutverki sem skynjarar fyrir taugakerfið og senda boð þegar dýrinu er orðið of heitt og þarf að færa sig í skugga. Til að viðhalda góðu ástandi einstakra hára er mælt með að klippa feldinn með skærum fremur en að raka hann, því þannig verður skurðflöturinn sléttari og hárhyrnið lokast betur. 

Hjá hundum með tvöfaldan feld er mikilvægt að styðja við náttúrulegt hárlos að vori. Með réttri umönnun helst feldurinn heilbrigður og getur gegnt hlutverki sínu sem best yfir sumarið. 

UV-vörn með næringu 

Til að vernda gegn áhrifum sólar má nota næringu sem inniheldur UV-vörn. Vörulínur eins og Black Passion frá Iv San Bernard hafa andoxandi eiginleika sem vernda húð og feld fyrir UV-geislum og borgarmengun. Einnig má finna slíka vörn í Caviar 10in1 næringarspreyinu og í ósonhitaðri ólífuolíu

Mikilvægt er að litarefni hársins virki rétt – þegar svartur feldur verður rauðleitur eða hvítur gulnar (án þess að um sé að ræða óhreinindi), þá getur verið um oxun að ræða. Þetta getur haft áhrif á virkni litarefnanna sem eru tengd taugakerfinu í gegnum hárið. Besta forvörnin gegn oxun er að innsigla hárhyrnið með næringu. Þar kemur PEK næringin sterk inn – hún innsiglar og styrkir yfirborð hársins. 

Ef oxun hefur átt sér stað má byrja með Cristal Clean sjampó, og vinna síðan með Cristal Clean næringu, froðu eða sápustykki á staðbundin svæði. Þegar liturinn hefur náð sér, má bæta Cristal Clean næringunni í reglulegu næringarblönduna ásamt PEK næringu til að viðhalda virkni. Einnig skiptir miklu máli að bæta við olíu og raka með nærandi, olíuríkri næringu – sérstaklega hjá stutthærðum tegundum eða hundum sem fara mikið í vatn. 

Flær og aðrir óboðnir gestir 

Sumarið kallar líka fram ýmis skordýr og sníkjudýr sem vilja narta í dýrin okkar. Til að verja húð og feld er reglubundinn þvottur lykilatriði – helst mánaðarlega – og þá með réttu pH-jafnvægi og réttri næringu fyrir viðkomandi feldgerð. 

Protective Shield sjampó og næring frá Iv San Bernard innihalda eucalyptol og myntu sem hrinda sníkjudýrum frá á náttúrulegan hátt. Þessar vörur róa einnig húðina með innihaldsefnum eins og kamillu og malvíu. Þær kæla húðina og gera feldinn minna aðlaðandi fyrir skordýr. 

Sjampóið má nota óblandað eða í hlutföllunum 1:3 með volgu vatni. Næringuna má nota hreina eða sem hluta af næringarblöndu. Gott er að bæta við PEK og PH Balance til að loka virkum efnum inni í hárinu og styrkja varnarhjúp húðarinnar. Gætið þess að láta bæði sjampó og næringu vinna í a.m.k. 5 mínútur. 

Á milli baða má búa til verndandi sprey úr Protective Shield næringunni (1 tsk í 0,5 L af heitu vatni, blanda og kæla). Þetta sprey má úða yfir feldinn og sérstaklega á húðina – sérstaklega ef hundurinn eyðir miklum tíma úti eða ef baðþvottur er ekki mögulegur reglulega. 

Zolfo Plus sjampóið styrkir húðina með því að endurbyggja keratínlagið og mynda verndandi varnarlag. Þetta bætir ástand húðarinnar og dregur þannig úr líkum á að sníkjudýr og bakteríur festi sig við húðina. 

Ef hundurinn er í aukinni hættu á að fá snýkjudýr og þarf lyfjameðferð (t.d. dropa í hnakkann), þá er sérlega mikilvægt að húð og feldur séu í góðu jafnvægi – þannig nýtast lyfin betur og líkurnar á ertingu minnka. Rétt næring styður einnig virkni slíkra vara þar sem mörg þeirra virka í gegnum fitu húðarinnar. 

Ef skordýr hefur þegar stungið dýrið er SOS Derma Gel frábær viðbót til að róa húðina og draga úr kláða. Hann má einnig nota við „hot spots“ til að fyrirbyggja að þau versni við klór og vegna þess að hundurinn er að sleikja sig. 

Hreinlæti í augum, eyrum og húðfellingum 

Á sumrin er algengt að þurfa að þrífa augu og eyru eftir sund eða leik á sandi. CleanEar og CleanEye eru sérhannaðar og mildar vörur fyrir slík tilfelli. Ef sandur eða sviti safnast í húðfellingum má nota PuppyDon’tCry sápu til að ná að hreinsa vel. Eftir slíka hreinsun er gott að nota SilPlus dropa til að endurheimta pH-jafnvægið og vernda viðkvæma húð.

Hundar sem elska að busla – hvernig verjum við húð og feld? 

Þegar hundur fer oft í vatn getur það sett húðina og feldinn undir aukið álag – sérstaklega ef vatnið kemst í snertingu við húðina í hvert skipti. Hjá vatnshundum er eðlilega 30% meiri fituframleiðsla sem ver gegn áhrifum vatns – en hjá öðrum tegundum getum við líkt eftir þessu með því að nota olíuríka næringu eða sprey áður en farið er í vatn. 

Hægt er að búa til sprey með K101 næringu (10% næring + 90% vatn), úða yfir feldinn og láta þorna áður en dýrið fer í vatn. K101 inniheldur avókadóolíu og er meðal næringarríkustu og feitustu vara Iv San Bernard. 

Eftir sund þarf að þurrka hundinn vel til að koma í veg fyrir bakteríuvöxt eða myndun „hot spots“. Það má einnig nota Zolfo Plus sjampó eftir sund – það endurbyggir keratínlag húðarinnar og gerir yfirborðið minna aðlaðandi fyrir bakteríur. 

Mikilvægt er að forðast að raka feldinn alveg stuttan – húð hundsins er þynnri en hjá fólki og næmari fyrir umhverfisáhrifum. Þess í stað er betra að létta undirfeldinn, til dæmis með sérmeðferð, svo yfirfeldurinn haldist til verndar en feldurinn verði þægilegri og fljótari að þurrka eftir sund eða bleytu. 

Ertu með spurningar eða langar í ráðleggingar sniðnar að þínum hundi? Ekki hika við að senda okkur skilaboð – við hjálpum þér að velja bestu verndina fyrir sumarið! 🌞🐾