Traditional line

Þessi vörulína inniheldur náttúruleg hráefni og er hönnuð til að meðhöndla ólíkar feldgerðir (stuttan, meðal og síðan) og rétta meðhöndlun húðarinnar. Traditional line hefur mætt þörfum besta vinarins í yfir 20 ár og haldið þeim fallegum, heilbrigðum og hreinum. 

Traditional line inniheldur viðhaldsvörur sem mæta þörfum dýranna þegar ekkert sérstakt áhyggjuefni er til staðar hvað varðar húð og feld annað en mögulega þurrkur. 

  • Sítrónusjampó og næring

    Hannað fyrir snögghærðan feld og stuðlar að fitujafnvægi húðarinnar, verndar hana og feldinn og kemur í veg fyrir flösumyndun.

  • Bananasjampó og næring

    Hannað fyrir meðalsíðan feld en flestar hundategundir falla hér undir og allar kattategundir. Bananalínan breytir ekki áferð feldsins en gefur glans og mýkt. Línan inniheldur nauðsynlegt steinefni og næringarefni.

  • Grænt eplasjampó og næring

    Hannað fyrir síðan feld og þar sem öll hárin eru vel mótuð þarf að tryggja að hárhyrnið falli vel að hverju hári og hafa þessar vörur verið þróaðar til að ná því markmiði. Þessi lína inniheldur einnig meira af kollageni sem er mikilvægasta byggingarefni húðarinnar og tryggir aukin raka.