Safn: Hvolpastartpakki

Það er vel þess virði að hefja umönnun á húð og feldi hvolpa frá upphafi með réttum vörum og tækni.  Hér finnur þú nánari fræðslu um hvolpafeldinn og umönnun hans.

Mikilvægt er að þvo hvolpana með sjampói og alltaf nota næringu á eftir. Í upphafi mæli ég með hvolpasjampói og næringu en þegar þau eldast að nota viðeigandi sjampó og næringu sem hentar feldgerð hundsins. Þegar feldgerð hvolpanna er þannig að feldurinn fer að flækjast þegar þau eldast mæli ég sérstaklega með því að bæta PEK við næringuna (oft um 5 - 8 mánaða).

Þá mæli ég með mjúkum bursta fyrir alla hvolpa og lítilli greiðu, sérstaklega fyrir feldhunda. Einnig getur verið gott að eiga stærri greiðu þegar feldurinn lengist.

Við kaup á hvolpa sjampói og næringu færðu 30% afslátt af allt að fimm öðrum vörum úr hvolpastartpakkanum.