Frí sending með Dropp á pöntunum yfir 12.500 kr.

Feldnámskeið - skráning á biðlista

Leiðbeinendur eru Sigga Magga, sem ræktar Tia Oroka Cotona og Anna María sem ræktar Havanese, en leiðbeint verður með böðun og annað sem viðkemur feldhirðu. 

Tilvalið fyrir þá sem vantar leiðbeiningu um það hvernig þeir ættu að haga feldhirðu sinna hunda. Leiðbeiningarnar eiga helst við feldhunda eins og Coton, Havanese, Tibetan Terríer, Lhasa Apso, Maltese og tegundir með sambærilegan feld, hvort sem hundarnir eru í fullum feld eða hafa verið rakaðir.

Á námskeiðinu fer einnig fram kynning á vörum frá Iv San Bernard og veittur verður 15% afsláttur af þeim þetta kvöld.

Námskeiðið verður haldið að Klukkuholt 12, Álftanesi. Ekki er gert ráð fyrir að hundar komi með á námskeiðið.

 

Skráning á biðlista.