Safn: Síður feldur

Hjá hundum sem fá síðan feld vex eitt aðalhár úr hverjum hársekk sem nær fullri lengd feldsins. Úr sama hársekk vaxa 4 - 6 stuðningshár sem verða mislöng. Fyrir hunda með þessa feldgerð notum við vörur sem styðja sem best við aðalhárið. 

Það er margt sem getur haft áhrif á heilbrigði feldsins eins og t.d. álag, veikindi, lyf, gelding/ófrjósemis aðgerð, meðganga og mjólkurframleiðsla, veðrið (hiti, raki, sól o.s.frv) o.fl.

Feldurinn getur því breyst sem og sú umhirða sem hann þarfnast. Vanti þig ráð með feldhirðuna er velkomið að hafa samband hér í gegnum síðuna.

Athugið að við val á vörum skal hafa í huga hvernig feldurinn væri ef hann er ekki klipptur.