![HURT - 23 cm](http://www.ivsanbernard.is/cdn/shop/files/1_72210852-56a3-4a3b-9acc-e5e9002a6bd3_{width}x.png?v=1717347345)
Martingale ól úr leðri með nælonborða.
Ól úr mjúku leðri, skreytt með litríkum textíl borða. Leðrið rennur vel á feldi hundsins og því eru ólarnar sérstaklega hentugar fyrir feldhunda til að lágmarka að flækjur myndast á ólarsvæðinu.
Ólarnar koma í fjölbreyttum litum og lengdum. Breidd ólanna er 40 mm.
Til að finna rétta stærð af ól fyrir hundinn þinn er hálsinn mældur fyrir aftan eyrun og valin ól í samræmi við þá mælingu. Heildarummál ólarinnar, með nælonborðanum, ætti að vera nægjanlegt til að smeygja ólinni yfir höfuð hundsins. Ekki er mælt með því að hafa ólina eina sér á hundinum, heldur er hún eingöngu til notkunar í göngutúrum.
Ólarnar eru framleiddar af Onega.