Lóðabuxur úr mjúku og teygjanlegu efni. Einfalt er að klæða tík í buxurnar þar sem þær opnast alveg og eru festar saman með frönskum rennilás. Buxurnar sitja vel og örugglega á sínum stað.
Efnið er teygjanlegt, vatnsfráhrindandi og andar vel. Innra lagið er mjúkt og þægilegt viðkomu. Til að auka vernd er hægt að nota innlegg sem þarf að skipta um eftir þörfum til að tryggja þægindi og hreinlæti.
Mælt er með að eiga að minnsta kosti tvö sett af lóðabuxum svo alltaf sé til hreint sett meðan hitt er í þvotti. Buxurnar henta vel fyrir daglega notkun, til dæmis innandyra, í heimsóknum eða í hundaskóla.
Buxurnar eru fáanlegar með eða án fjölnota innleggs.
| Stærð | Mitti (cm) | Mjaðmamál | Hentar almennt fyrir tegund |
|---|---|---|---|
| XS | 29–40 | 33 | Yfir 3 kg, Chihuahua, Miniature Poodle, Yorkshire terrier |
| S | 36–47 | 39 | Boston Terrier, Jack Russell Terrier (stærri tíkur, stærð M) |
| M | 43–55 | 42 | Franskur bolabítur, Pug, Fox Terrier, Bordecollie (lítill), Dachshund, Tibetan Spaniel |
| L | 49–67 | 49 | Boxer, Golden Retriever, Australian Shepherd (stærri tíkur, stærð XL) |
| XL | 59–81 | 57 | Þýskur fjárhundur |
| XXL | 73–88 | 65 | Berner mountaindog, Great Dane (minni stærð XL), Saint Bernard, Bullmastiff |
Með því að hugsa vel um vöruna þína geturðu tryggt langan endingatíma hennar.
- Þvoið við 30 gráður í þvottavél.
- Festið saman franska rennilásinn.
- Ekki nota mýkingarefni.
- Ekki þurrka í þurrkara.
