Safn: Papillon - 8 ára - Alopecia

Þessi meðferð er sett saman fyrir 8 ára Papillon sem vantar feld.

Þessa meðferð ætti að endurtaka í 6 skipti, á 10 daga fresti.

Fyrsta meðhöndlun - 1 skipti

Red clay, 50 ml og 10 ml Ginkgo. Blandað vel saman og makað yfir líkamann. Látið vinna í 15 mín og skolið vandlega.

Premask

Þá eru settar um 15 ml. af Zeo mask og 15 ml. af PH balance og blandað vel saman við um 0,5 dl. af volgu vatni. Þessi blanda er borin í þurran feldinn og látið vinna í um 15 mín á meðan hundinum er pakkað í handklæði. Þar á eftir er blandan skoluð vandlega úr feldinum.

Sjampó

Zolfo sjampó 15 ml. og 5 ml. Ozon oil blandað í um 1 dl. af volgu vatni og notað til að þvo feldinn. Vinnið upp froðu alveg niður að húð (olían dregur þó úr hæfileikum sjampósins til að freyða). Skolið vandlega þar til allar sápuleyfar eru komnar úr feldinum.

Næring

10 ml. Zeo maks, 10 ml. PH balance og 5 ml Ginkgo oil blandað saman í um 1 dl. af volgu vatni og borið í allan feldinn, látið vinna í 3 - 5 mín og skolið vandlega úr feldinum.

Á milli meðhöndlunar

Bera Oligo elements á húðina tvisvar í viku.

Að lokinni meðhöndlun

Þegar meðhöndlun er lokið skal baða hundinn mánaðarlega með Mineral H sjampói og næra feldinn með Derma Plus næringu, 10 ml, PH balance, 10 ml. og Green Caviar 10 ml.